Til hvers???

En hvað ég vorkenni lögreglunni stundumm.... Sérstaklega núna.... Hvernig haldiði að þeim líði að þurfa að vera að vinna í stað þess að taka þátt í þessum mótmælum.... Ætli það sé ekki bara þess vegna sem að þeir hafa bara handtekið einn mann í stað nokkurra??? það hafa örugglega fleiri átt skilið að vera handteknir...

 Lögreglan á þetta ekki skilið.... Þeir eru bara að halda í vinnuna sem þeir hafa.... í rauninni er þetta atvinnuskapandi fyrir lögregluna... Halda áfram að mótmæla og styrkjum atvinnulífið haha

en Þeir sem hafa verið að atast út í lögregluna hafa ekki verið að pæla mikið.... Ættu að láta hana eiga sig og mótmæla stjórninni í landinu...

kveðja

Toffy


mbl.is Veitast að lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er málið???

Hvað er málið með þessa ríkisstjórn???

Það mætti halda að það væri t.d engin ólétt kona í ríkistjórn, sem er pottþétt ekki, karlar sem eru löngu útbrunnir eða geta ekki ekki eignast börn og láta það bitna á hinum sem eru í blóma lífsins að eignast sín fyrstu, síðustu eða bara börn númer eitthvað :)

Ekki vildi ég vera ólétt í dag og engin ljósmóðir að hjálpa mér??? hver á að hjálpa þessum konum sem eru að eignast börn t.d bara í nótt??? Það væri réttast að hringja í Árna eða hvað hann nú heitir og láta hann taka á móti börnum, ekki það að ég myndi ekki vilja láta hann taka á móti mínu barni en það er alveg sama...

Þetta á samt ekki bara við um ljósmæður þótt að þær standi kannski verst í þessu í dag... þetta á bara við um öll störf sem að ríkið borgar

Þetta eru mikilvægustu störfin og það eru skítalaun í þessu, það er ekki nema von að engin haldist í þessum störfum, hver haldiði að geti lifað í samfélaginu í dag með 100 - 150 þús á mánuði? Þwtta er bara rugl, og ætla ég að vitna í einn strák sem er nýbúin í lögregluskólanum og var að spjalla við annan um þetta nám „þú ferð ekki í þetta útaf pening, heldur áhuga" hvað segir það okkur???

Þess vegna spyr ég hvað eru margir sem hafa áhuga á því að vera í skóla í að minnsta kosti 3 ár fleiri ef að þú ætlar t.d að verða ljósmóðir, og vinna svo eins og brjálæðingur alla ævi og vera í stanslausum ótta við það hvort að þú getir borgað skuldirnar um mánaðarmótin og ef að það er hægt hef ég nóg handa mér og fjölskyldu minni til að lifa af mánuðinn???

En ætla ekki að hafa þetta lengra, er komin í of mikin ham og gæti skrifað eitthvað sem á ekki við.. ef að ég er ekki þegar búin að því

 


mbl.is Ljósmæður: Uppsagnir löglegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært framtak

En hvað ég er ánægð að vita til þess að allavega sumir leikarar eru ekki bara plebbar.  Þeir hækka í áliti hjá mér þessir eftir að ég las þessa frétt....


mbl.is Dóttir Heath Ledgers fær laun þriggja leikara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Himmm

Já álver og aftur álver.... Hef ekkert á móti stóriðju eða neinu þannig og frábært að Húsavík fái eitthvað að gera... Eins og hérna fyrir austan þá hefur álverið verið alger upplyfting fyrir austurland en afhverju annað álver??? Afhverju er ekki gerð bara verksmiðja sem gerir eitthvað úr álinu??? nei bara pæling....

kveðja

Toffy 


mbl.is Viljayfirlýsing framlengd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birnir á heilanum

Haha er fólk með ísbirni á heilanum... sér eitthvað hvít og þá bara ónei þarna er ísbjörn... gæti þess vegna verið snjór eða eitthvað... fer eftir því hvar þú ert... Ef það er Ísbjörn á landinu hvernig væri þá bara að leifa honum að vera þar til að hann birtist í raun og veru...

 kveðja

Toffy 


mbl.is Bjarndýrsútkall í Langadal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju spears

Jah ég segi nú ekki annað en til hamingju spears fjölskylda þrátt fyrir að keisarinn hafi verið tekinn mán fyrir tímann þá voru víst einhver vandamál í gangi.... En það sem að mér finnst best er að hún og kærastinn hafi keypt sér hús í einhverjum smábæ og ekki bara eitthvert risa hús heldur 3 herbergja einbýlishús sem að mér finnst ekki vera að votta fyrir að sínast vera ríkari og yfir aðra hafinn mér finnst þetta bara frábært :)

Kveðja

Toffy

En að svekkja sig yfir fáum commentum frá blogginu á kvennréttindadaginn


mbl.is Britney Spears orðin móðursystir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bræðslan á Borgarfirði

Ég tel að Bræðslan á Borgarfirði eystri sé málið.... Vinkona mín nelgdi tvo miða í kvöld eða gærkvöldi :) og er nú beðið eftri fjörinu...

Það er mikið meiri stemning á Borgarfirði, fólk tjaldar og djammið heldur áfram langt fram eftir nóttu á einhverju tjaldstæði lengst út í eða inn í sveit....

kveðja

Toffy


mbl.is Uppselt á Rice á Nasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvennréttindadagurinn

Kvennréttindadagurinn var í dag 19. júní eða í gær þegar þetta er skrifað... Hvað er málið með það????

Fyrst berjumst við fyrir jafnrétti við karlmanninn, fáum kostningarétt, fáum að fara í skóla til að það verði eitthvað úr okkur og ég veit ekki hvað og hvað... svo þegar það er komið þá kemur kvennréttindadagurinn og sumstaðar fá þær meira að segja frí... veit að þetta er kannski ekki allt í réttri röð kannski var kvennréttindadagurinn fyrstur en mér er alveg sama.... Talandi um jafnrétti er til karlréttindadagurinn og allir klæðast bláu og fá köku og sumir frí???? Nei hann er ekki til.... Er til athvaf fyrir fyrir menn sem að hafa orðið fyrir áreiti eða niðurlægingu frá kvennmanni??? Nei allavega ekki svo að ég viti um, en þetta kemur fyrir þá líka... Er til karlahlaup eins og kvennahlaup????Það er til líkamsræktarstöð fyrir konur, hvar er líkamsræktarstöð fyrir karla??? Ef að hún yrði stofnuð yrði feministafélagið vitlaust og myndi mótmæla öllu og gera allt vitlaust... Er eitthvað sér karla til?? nei hvað er í gangi??? hvað eru feministar búnir að gera við kvennmanninn í þjóðfélaginu???? Án gríns afhverju ganga konur ekki bara enn í flottum kjólum og eru heima með börnin og eru húsmæður...kjoll Ætli það yrði ekki bara ódýrara að vera heima og þurfa ekki að borga leikskólagjöld, matvörur yrðu unnar mest heima og settur í frystikistu svo að nægur yrði maturinn í staðinn fyrir að kaupa rándýran skyndibita eða frosinn kjötbúðing í öll mál.... vera með matjurtargarð með kartöflum og grænmeti og geta heimsótt vinkonur sínar sem eru líka heima... Karlmaðurinn fær að vera úti að vinna og kemur heim á kvöldinn eða morgnanna og fjölskyldan sameinast...man home Er eitthvað að þessu???? Var einhverntíman eitthvað að þessu fyrirkomulagi???? Ég neita ekki að mér finnst gaman í vinnunni því að mér finnst það og mér finnst ekki leiðinlegt að vinna og ég er að fara í háskólann í haust, en mér finnst líka allt í lagi að konur fái bara að vera konur og karlmenn fái bara að vera karlmenn....

Virðist þetta blogg vera biturt??? nei ég er ekki bitur ég bara er komin með nóg af þessu kvennréttindabulli... Feministakjaftæði.... Ég vil samt benda á að ég er ekki á móti kvennréttindadeginum, eða neinu þannig heldur finnst mér þessi barátta vera komin út í öfgar og verið að snúast upp í andhverfu sína og lítur stundum illa út fyrir konur. Kvennréttindi eiga snúast um að vera jafningjar en halda í kvennlega og karlmannlegahlutan í lífinu samt. Ekki að reyna að vera betri eða verri en hvort annað.

Ég er auðvitað sammála sumu sem að er verið að gera....   mér finnst flott að það sé verið að hjálpa konum sem að hafa orðið fyrir heimilisofbeldi og niðurlægingu karlmanna og að þjóðfélagið sé orðið opnara fyrir þeim vandamálum í staðin eins og þetta var í gamladaga þegar að þetta var allt bælt niður og að karlmaðurinn hefði rétt á þessu.... Ég er heldur ekkert á móti því að konur fái það sama og karlar en mér finnst þetta bara svo mikið feminista eitthvað komið út í öfgar og er farið að snúast meira um að verða betri og meiri en karlar og jafnvel farið að líta niður á þá.

En mér finnst samt eins og karlmennskan sé að hverfa og þjóðfélagið sé að verða eins og ég veit ekki hvað því að ég á ekki orð yfir það, og karlmenn sem lesa þetta... Karlrembur eru ekki heldur cool....

Hvað varð af herramanninum sem að opnar dyrnar fyrir kvennmanni, blikkar til hennar og þá veit hún að það sé eitthvað varið í hana, hvar er stefnumótamenningin sem að var einu sinni, strákur bíður stelpu á dansleik því að hann er skotin í henni og svo fylgir hann henni heim hvar er allt þetta???? Það er gersamlega horfið..... romantik

Er ég kannski orðin of dreymin og rómantísk.... er það ekki bara það sem að vantar í þetta andlega sjúka og skítuga þjóðfélag okkar???

Jæja ætla að láta þetta gott heita og vona að fólk fari að hugsa sinn gang....

kveðja

Toffy sem er alls ekkert bitur 


Hvað er að gerast???

Haha hvað er að gerast á landinu :) Ísbirnir tíðir gestir, loksins er spennandi að fara í útilegu á Íslandi nema að það er ekki skógarbirnir sem að þarf að varast heldur Ísbirnir sem er auðvitað skiljanlegt landið heitir Ísland og þar er enn snjór í fjöllum sumstaðar en engir skógar svo að hvernig má annað vera en að ef að manni dytti í hug að fara í útilegu að þá rækist maður á ísbjörn... líst vel á þetta Ísbirnir eru sætir og hættulegir... Ættli kjötið á þeim sé ekki líka gott á bragðið??? það er spurning :)
mbl.is Hálendisbjörn er hugsanlegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Held að fólk sé ekki alveg að skilja...

Mikið held ég að sumt fólk sé veruleikafyrrt... Þessi Ísbjörn var særður og horuð og þoldi ekki að vera svæfð... Hefði það verið eitthvað betra að það hefði verið hægt að koma henni til grænlands og drepist þá frekar þar í vanmætti sínum???

Held að fólk sé ekki alveg að skilja að þetta eru grimmar skepnur og ef að þær reiðast eða eitthvað þannig þá er ekekrt sem að við mannfólkið getum gert, við erum bara peð miðað við þessi dýr. 

En þar fyrir utan þá er mjög leiðinlegt að ekki hafi verið hægt að bjarga báðum dýrunum... Það hefði verið meiri séns að bjarga þeim fyrri þar sem að hann var ekki særður og ekki eins illa á sig kominn. 

En svona er þetta bara, væri bara kannski gaman að stoppa bæði dýrin upp því að það gerist ekki oft að tvö dýr komi til landsins á svo stuttum tíma... Nema að þetta hafi verið par sem að kom saman og urðu svo viðskila hver veit... Og ein spurnign að lokum, eru fleiri dýr á landinu???

 

Kveðja

Toffy


mbl.is Ísbjörninn að Hrauni dauður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Toffy
Toffy
Úff hvar á ég að byrja, er lítil, frek en frábærlega skemmtileg :)

243 dagar til jóla

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 194

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband